top of page



Brúin
Brúin veit hver þú ert þó þú hafir gleymt því! Að vera brú þýðir í raun að lifa í hlutleysi, að taka ekki hliðar með einum eða öðrum, að elska án skilyrða. Við erum brúin, við komum hingað til að byggja tengsl þar sem skilningur á sér stað og með því tengja aftur það sem hefur verið rifið í sundur bæði innra með fólki og á milli þeirra, til þess að sýna fólki leiðina sem hefur villst eða ráfað burt. Í grunninn vinnum við að því að brúa ótta og frið. Margir lifa í stöðugri var


Þú ert skapandi!
Þú ert að uppgötva þinn sannleika sem og þína sköpunargáfu. Eftir áralanga aftengingu ert þú að tengjast þínu innra barni og uppgötva að þú ert örugg, að þú varst alltaf örugg þrátt fyrir upplifunina af því að vera það ekki. Þér er óhætt að vera þú sjálf og hætta að fresta því sem þig hefur innst inni alltaf langað til þess að gera. Þú ert hægt og rólega að byggja upp grunninn að því að lifa í mótstöðuleysi, að finna fyrir fullu öryggi í eigin skinni og þar með öryggi í öllum


Uppljómun og sameining í kærleika
Ferðalag mitt hér í jarðarskólanum mun seint teljast það sem ég hefði áður kallað “eðlilegt” en hvað vissi ég svosem um hver mín örlög yrðu þegar ég mætti hingað til jarðar galvösk, tilbúin í ný ævintýri. Ævintýri er ekki einu sinni réttnefni, það er ekki til réttnefni á það sem ég hef upplifað og held áfram að upplifa. Orðaforði tungumálsins er ekki nógu stór til að ná utanum það allt, það eru ekki til orð yfir það. Ég vissi alltaf sem barn að mér væri ætlað stórt hlutverk í


Taugakerfið og nýjar upplifanir í nýrri tíðni
Við stöndum á tímamótum. Eitt af öðru erum við að læra að hægja á hraðanum í lífi okkar og komast út úr skaðlegri hringekju þar sem allir hafa lifað í survival mode svo árum skiptir, alltaf á varðbergi, búa sig undir það versta og “þrauka” í gegnum lífið sem fer alltaf fram á meira og meira af okkur. Taugakerfið okkar hefur með tímanum vanist því að hraðinn sé aukinn, þangað til að hraðinn fór fram úr því sem eðlilegt telst og eitt af öðru fórum við að taka í bremsuna og hægj


Hvað er andleg vakning?
Andleg vakning hefst þegar þú upplifir að líf þitt passi ekki lengur við það hver þú ert innra með þér. Þú ferð í gegnum rútínurna þína, talar við sama fólkið, lifir sömu mynstrum en eitthvað er á skjön við það sem áður var. Þú hættir að geta látið eins og ekkert sé. Sál þín byrjar að ýta við þér, hljóðlega í fyrstu og segir þér að það sé meira til í lífinu en hlutverkin, væntingarnar og venjurnar sem þú hefur lifað eftir. Þegar þessi tilfinning vex byrjar sjálfsmyndin sem þú
bottom of page
