top of page

Taugakerfið og nýjar upplifanir í nýrri tíðni

Við stöndum á tímamótum.

Eitt af öðru erum við að læra að hægja á hraðanum í lífi okkar og komast út úr skaðlegri hringekju þar sem allir hafa lifað í survival mode svo árum skiptir, alltaf á varðbergi, búa sig undir það versta og “þrauka” í gegnum lífið sem fer alltaf fram á meira og meira af okkur. Taugakerfið okkar hefur með tímanum vanist því að hraðinn sé aukinn, þangað til að hraðinn fór fram úr því sem eðlilegt telst og eitt af öðru fórum við að taka í bremsuna og hægja á af illri nauðsyn, sumir útbrunnir, aðrir á barmi þess.

Nú þegar miklar breytingar hafa orðið á tíðni heimsins er tekið í bremsuna fyrir þá sem ekki hafa hægt á sjálfir.

Fyrst um sinn er það rosalega óþægilegt, þú kannt ekki að slaka á, finnur fjöldan allan af tilfinningum sem hafa beðið þess að þú hægir á til þess að taka eftir þeim. Ótti, kvíði, að finnast maður ekki vera nógu góð/ur, finnast maður gagnslaus, gagnrýni á sjálfið fyrir að vera ekki að gera nóg…. Ég gæti talið endalaust áfram. Taugakerfið þitt er að koma sér úr fight and flight mode og aðlaga sig að RÓ. Í rónni er ansi margt óþægilegt ef þú hefur ekki leyft þér að lifa í ró eða fattað hversu fjarlæg róin var í þínu lífi. Í rónni finnur þú ÞIG!

Undarleg tilfinning að finna allt í einu hvernig taugakerfið hefur haft fast hald á manni, í hálfgerðri spennitreyju.


Ef þú leyfir þér að finna og slaka á í núinu breytir þú algerlega alkemíunni í þínu lífi, allt verður skýrara, innsæið þitt finnur þig og þú veist allt í einu miklu betur hvað þú vilt. Gamlar tímalínur hrynja hljóðlega því þú ákveður nýja stefnu og sjálfsmyndin sem þú hafðir sem fólu í sér að gefa úr tómum bolla, þóknast öðrum, halda út eða sanna eitthvað fyrir einhverjum fellur burt og eftir verður rými fyrir þig til að ákveða hvað þú stígur inn í næst. Hlutverkin sem þú uppfylltir áður passa þér ekki lengur, trú sem hjálpaði þér að lifa af hjálpar þér ekki lengur að lifa og þegar þessi lög byrja að falla burt lendir þú í rými sem hefur ekkert tungumál.

Þú ert ekki brotin/n, ekki týnd/ur, bara ekki lengur sú/sá sem þú varst. Það er eðlilegur staður að vera á og þarf ekki að laga, bara fá rými til að fá að vera.

Hægari morgnar, minni hávaði, meiri hreinskilni við sjálfa/n þig. Líkami þinn og sál eru að ná réttum takti eftir að hafa verið úr takti alltof lengi og þessi tími inn á milli útgáfa af þér getur verið eins og þoka áður en henni léttir. Það er ekkert að þér – Þú ert bara að losa þig við það sem þjónar þér ekki lengur, treystu flæðinu. Það sem er að koma fram er raunverulegra en nokkuð sem þú ert að tapa!

Njóttu þess að slaka á inn í nýja og betrumbætta útgáfu af þér sem starfar frá rólegum, jarðtengdum stað, án alls stress og staðla sem aðrir settu á þig og þú taldir þér trú um að þú þyrftir að halda í til að vera nógu góð/ur.

 
 
 

Comments


©2025 Guðs vitund

bottom of page