top of page

Þú ert skapandi!

Þú ert að uppgötva þinn sannleika sem og þína sköpunargáfu. Eftir áralanga aftengingu ert þú að tengjast þínu innra barni og uppgötva að þú ert örugg, að þú varst alltaf örugg þrátt fyrir upplifunina af því að vera það ekki. Þér er óhætt að vera þú sjálf og hætta að fresta því sem þig hefur innst inni alltaf langað til þess að gera.


Þú ert hægt og rólega að byggja upp grunninn að því að lifa í mótstöðuleysi, að finna fyrir fullu öryggi í eigin skinni og þar með öryggi í öllum aðstæðum lífsins.

Taugakerfið þitt er ekki lengur að gefa viðvörunarbjöllur um hættuástand því þér hefur tekist að þekkja sannleikann. Njóttu þess að tengjast þér á dýpri hátt - í náttúrunni, í hugleiðslu, í þeim hlutum sem þú elskar að skapa og leyfðu þér að tengjast hjarta þínu og elska eigin félagsskap. Njóttu endurkynna þinna við barnslega gleði og hjartatengingu til fulls og til hamingju með endurfundina!


 
 
 

Comments


©2025 Guðs vitund

bottom of page