top of page



Ást er aflið sem skapar nýjan heim!
Ást er ekki bara mannleg tilfinning milli ástfanginna einstaklinga, ást er uppruni þinn og samtengjandi afl okkar allra. Ást er aflið sem skapar nýjan heim. Fegurð í brosi og ósögðum orðum, velvild og hjartahlýja til alls sem er, á dýpi sem fæst ekki lýst með orðum, aðeins fundið í dýpstu tengingu sálar við upprunann. Það sem augun sjá er takmarkað - það sem hjartað finnur, endalaust. Ást er aldrei sóað, jafnvel þó að aðrir geti ekki tekið þinni ást nema á því dýpi sem þeir e


Að lifa frá hjartanu í stað hugans
Fyrri hluta ævi minnar lifði ég frá huganum. Hugurinn er sá sem vill hafa allt á hreinu, stjórna öllu, spá fyrir um allt og vernda mig gegn sársauka og óvissu. Hugurinn er öflugt verkfæri en honum var aðeins ætlað að koma mér svo langt og síst af öllu var honum ætlað að vera stjórnandi lífs míns. Þegar ég lifði frá huganum var lífið þungt og innantómt þrátt fyrir tilraunir til annars. Ég gat hugsað um að vilja frið og betra líf á meðan það ríkti stríð innra með mér. Hugurinn


Burnout - séð frá andlegu sjónarhorni
“Burnout” er líkamlegt ástand sem gerir vart við sig þegar líkami og sál dansa ekki í takt og andlega hliðin þín hefur verið svelt svo um munar á kostnað taugakerfis þíns. Það er þín áminning á að því meira sem þú gerir “þarna úti”, því aftengdari ertu þínum raunverulega kjarna, sál þinni og innri veröld. Þetta ástand er ákall aftur heim! Heim í hjartað, heim í innri ró, heim til sjálfrar þín og þíns taugakerfis. Þú hefur rúllað áfram á hraða sem þú valdir ekki meðvitað, álag


Opið hjarta tengir okkur saman
"Opnaðu, slepptu, leyfðu", hvíslar hjarta þitt í örvæntingu. Tími til kominn að losa um brynjuna sem þú berð sem hefur haldið þér í ótta, efa og tilraunum til að hafa stjórn á lífinu. Brynjan er þín leið til að vernda sjálfa þig fyrir höggum lífsins en hún heldur þér líka frá tengingu við aðra og dýpstu fegurðinni sem lífið hefur uppá að bjóða. Fallega hjartað þitt bíður eftir því að finna, elska og vera elskað. Að fá tækifæri til að tengjast öðrum í samkennd, finna til meiri


Hugrekki
Í upphafi er hugrekki ekki fjarvera ótta, heldur vilji til að ganga í gegnum óttann. Í andlegum skilningi er hugrekki að treysta því að alheimurinn styðji þig, jafnvel þegar leiðin framundan er óljós. Það snýst um að gefast upp fyrir hinu óþekkta og mæta því sem kemur sama hvað. Hvað ef það sem þú óttast er í raun tækifæri til vaxtar og umbreytinga? Hvað ef hugrekkið sem þú leitar að er þegar innra með þér? Dragðu djúpt andann, treystu innsæinu þínu og stígðu út í hið óþekk
bottom of page
