Brúin
- Eva Karen

- Jan 18
- 2 min read

Brúin veit hver þú ert þó þú hafir gleymt því! Að vera brú þýðir í raun að lifa í hlutleysi, að taka ekki hliðar með einum eða öðrum, að elska án skilyrða. Við erum brúin, við komum hingað til að byggja tengsl þar sem skilningur á sér stað og með því tengja aftur það sem hefur verið rifið í sundur bæði innra með fólki og á milli þeirra, til þess að sýna fólki leiðina sem hefur villst eða ráfað burt. Í grunninn vinnum við að því að brúa ótta og frið.
Margir lifa í stöðugri varnarstöðu í taugakerfi sem er fast í að lifa af. Við sýnum þeim að það er mögulegt að standa á traustum grunni aftur. Ekki með því að rífast við óttann sinn, heldur með því að sýna stöðugleika. Með því að vera einhver sem espir ekki, skammast ekki og hverfur ekki þegar hlutirnir verða óþægilegir.
Við brúum innri og ytri heiminn.
Hugsanir, skoðanir, tilfinningar og sár eru nefninlega aldrei bara innvortis, það mótar hvernig fólk hegðar sér úti í samfélaginu, hvernig það rífst, berst, dregur sig í hlé, hjálpar eða elskar. Brúin hjálpar til við að þýða það sem er að gerast innra með einstaklingum í eitthvað meðvitað og ábyrgt út á við. Hún hjálpar fólki að fara frá því að bregðast við yfir í að svara frá heiluðum stað, frá ómeðvituðum mynstrum til meðvitaðra ákvarðana - að brúa fortíð og nútíð. Margir lifa út frá gömlum sögum og ókláraðri sorg og bregðast við deginum í dag með sársauka gærdagsins. Brúin eyðir ekki fortíðinni heldur hjálpar til við að samþætta hana og hjálpar fólki að bera það sem gerðist án þess að láta þyngdina af því stjórna sér lengur.
Við brúum sannleika og samúð því sannleikur án samúðar er grimmur. Brúin kann að halda ljósi á allar hliðar og getur sagt harða hluti í sannleika án dóma og boðið upp á umhyggju án þess að missa skýrleika. Hún skilur að heiðarleiki og góðvild eru ekki andstæður, heldur vinna þau saman. Heiðarleiki er í sannleika, sannleikur er alltaf í góðvild. Við brúum bil milli einstaklinga og þar með styrkjum við raunverulegt samfélag. Hjálpum fólki að muna að það skiptir máli og að saman sköpum við gott samfélag með allar okkar ólíku skoðanir, hugmyndir og hugsjónir. Brúin sýnir hvernig á að tilheyra án þess að yfirgefa sjálfan sig og hvernig á að vera fullvalda án þess að aðgreina sig frá öðrum. Við brúum aðskilnað milli andlega og efnislega heimsins, karl og kvenorkunnar, rökhugsunar og innsæis, styrks og blíðu. Við erum hér til að koma í veg fyrir frekari aftengingu og tengja saman það sem þegar er aftengt. Að vera brú þýðir ekki að standa kyrr á meðan aðrir valta yfir þig heldur að vita hvar þú endar og aðrir byrja.
Ef þú hefur eytt lífi þínu í að þýða, miðla, róa, útskýra og halda rými fyrir aðra þá er það vegna þess að þetta er verkefnið sem þú komst til að sinna. Þú ert ekki hér til að vinna rifrildi, þú ert hér til að halda tengingu lifandi nógu lengi til að eitthvað betra geti vaxið.
Þitt hlutverk skiptir máli!





Comments