Ást er aflið sem skapar nýjan heim!
- Eva Karen

- Apr 9
- 1 min read

Ást er ekki bara mannleg tilfinning milli ástfanginna einstaklinga, ást er uppruni þinn og samtengjandi afl okkar allra. Ást er aflið sem skapar nýjan heim.
Fegurð í brosi og ósögðum orðum, velvild og hjartahlýja til alls sem er, á dýpi sem fæst ekki lýst með orðum, aðeins fundið í dýpstu tengingu sálar við upprunann. Það sem augun sjá er takmarkað - það sem hjartað finnur, endalaust.
Ást er aldrei sóað, jafnvel þó að aðrir geti ekki tekið þinni ást nema á því dýpi sem þeir elska sjálfa sig. Fræjum er sáð, kærleikur opnar á kærleika og opið hjarta opnar hjörtu
Ég hef sönnun þess í eigin lífi.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi, hann er eilífðar gjaldmiðill.
Sterkari en allt annað og mest heilandi afl alheimsins.
Ég mun elska allt og alla af öllu hjarta alla tíð því ástin umbreytir og skapar heim sem ég vil lifa í












Comments