top of page

Burnout - séð frá andlegu sjónarhorni

“Burnout” er líkamlegt ástand sem gerir vart við sig þegar líkami og sál dansa ekki í takt og andlega hliðin þín hefur verið svelt svo um munar á kostnað taugakerfis þíns. Það er þín áminning á að því meira sem þú gerir “þarna úti”, því aftengdari ertu þínum raunverulega kjarna, sál þinni og innri veröld. Þetta ástand er ákall aftur heim! Heim í hjartað, heim í innri ró, heim til sjálfrar þín og þíns taugakerfis. Þú hefur rúllað áfram á hraða sem þú valdir ekki meðvitað, álagi sem annar hefur sett á þínar herðar og gert að þínu og þú hefur gleymt algerlega hvað það er sem þú í raun og veru þarft og komst hingað til þess að gera. Samfélagið eins og það hefur verið í áraraðir hefur farið fram á meira og meira af okkur og hraðinn aukinn langt framúr því sem eðlilegt telst. Viljandi er okkur haldið frá því að hægja á til að finna okkur sjálf. Það er ekki fyrr en hið svokallaða “burnout” ástand líkamans gerir vart við sig að við neyðumst til að setja í bremsu og í framhaldi skoða hvað það er sem olli því að við enduðum þar.

Líkaminn okkar er fullkominn - hann segir okkur til allan tímann ef við bara kunnum að hlusta og öll líkamleg einkenni stafa af ójafnvægi, spurningin er bara hvaða einkenni er verið að sýna þér og hvað er það að benda þér á?

Ef þú hefur brunnið út er mjög líklegt að það hafi komið þér í skilning um hvað þú hefur verið að fara á mis við. Það hefur breytt stefnu lífs þíns, gert þig að betri manneskju sem er meira í núinu, tengdari tilfinningum sínum, meira vakandi fyrir umhverfi sínu og með aðra forgangsröðun í lífinu en áður.

Þegar þú horfir á ástandið frá æðri augum sérðu að fleiri og fleiri manneskjum á heimsmælikvarða er gefið tækifæri til að velja aftur, tækifæri til að sjá og skilja hver þau eru og hvers vegna við erum hér í jarðarskólanum. Ég horfi á fleiri og fleiri einstaklinga leiðrétta afvegaleiðingu lífs síns vegna þess að þeir heyrðu ekki ákallið í tæka tíð í öllum hraðanum.

Ég sé ný tækifæri, kærleikann breiða úr sér, hjörtu opnast og skilning myndast og sem heild sköpum við ný tækifæri þar sem ekkert okkar þarf að upplifa að vera útbrunnin, heldur ríkir ró, friður og taugakerfið okkar dansar ljúfum lífsdansi.

 
 
 

Comments


©2025 Guðs vitund

bottom of page