top of page

Að lifa frá hjartanu í stað hugans

Fyrri hluta ævi minnar lifði ég frá huganum. Hugurinn er sá sem vill hafa allt á hreinu, stjórna öllu, spá fyrir um allt og vernda mig gegn sársauka og óvissu. Hugurinn er öflugt verkfæri en honum var aðeins ætlað að koma mér svo langt og síst af öllu var honum ætlað að vera stjórnandi lífs míns. Þegar ég lifði frá huganum var lífið þungt og innantómt þrátt fyrir tilraunir til annars.


Ég gat hugsað um að vilja frið og betra líf á meðan það ríkti stríð innra með mér. Hugurinn hljóp með mig í hringi í ótta en það er ekki þar sem mér var ætlað að vera. Þér er ekki ætlað að vera þar heldur.


Þér er ætlað að lifa frá hjartanu


Þegar þú tengist hjartanu víkur hugurinn og allar hans gildrur því hjartað veit og finnur hvað er satt, hvaða leið er rétt og hvað vill fæðast í þínu lífi. Þegar þú leyfir hjartanu að taka við stýrinu færðu að finna og sjá hversu töfrandi lífið getur verið og hvernig aðstæður mæta þér á annan hátt. Þú finnur þig inn í aðstæður í stað þess að hugsa þig í gegnum þær, þú treystir meira en að stjórna og þú opnar á annan veruleika sem er margfalt fegurri.

Hjartað finnur það sem hugurinn getur ekki tengt sig við. Það sem hugurinn sá sem vandamál finnur hjartað sem lærdóm og vöxt. Það sem hugurinn túlkar sem töf eða hindrun sér hjartað sem Guðdómlega tímasetningu. Hjartað sameinar og skapar einingu á meðan hugurinn finnur leiðir til að sundra. Þú ferð frá því að reyna að lifa af yfir í að dansa í takt við flæði lífsins vegna þess að traust þitt margfaldast og þú veist að allt er alltaf eins og það á að vera. Þú finnur hvernig þú ert leidd áfram að rétta fólkinu, réttu orðunum og réttu tækifærunum. Innsæi þitt styrkist og þín orka berst frá þér óhindrað til þess að sameina í heiðarleika og kærleika. Þú þráir að vera sönn og hreinskilni þín verður skarpari.

Hjartað er heimastaður sálarinnar og sálin leiðir þig alltaf áfram í kraftaverkum og tengir þig við dýpri sannleika sem hugurinn getur ekki útskýrt. Að lifa frá hjartanu krefst hugrekkis og trausts í upphafi - að venjast því að láta af stjórn hugans og finna þig inn í nýjan leiðandi kraft. Hjartað er heilagt og mun aldrei leiða þig villu vegar og þegar þú færð sönnun þess aftur og aftur finnur þú sanna lífsgleði, upplifir fegurð og heilaga nærveru eigin sálar þrátt fyrir allar áskoranir og sársauka. Viska hjartans opnar á heilagt líf sem þú þarft ekki að taka þér frí frá. Þegar hjartað er leiðandi í þínu lífi mun hugur þinn að endingu fylgja ráðleggingum þess með ró, trausti og skýrleika.

 
 
 

Comments


©2025 Guðs vitund

bottom of page