Opið hjarta tengir okkur saman
- Eva Karen

- 7 days ago
- 2 min read

"Opnaðu, slepptu, leyfðu", hvíslar hjarta þitt í örvæntingu. Tími til kominn að losa um brynjuna sem þú berð sem hefur haldið þér í ótta, efa og tilraunum til að hafa stjórn á lífinu. Brynjan er þín leið til að vernda sjálfa þig fyrir höggum lífsins en hún heldur þér líka frá tengingu við aðra og dýpstu fegurðinni sem lífið hefur uppá að bjóða.
Fallega hjartað þitt bíður eftir því að finna, elska og vera elskað. Að fá tækifæri til að tengjast öðrum í samkennd, finna til meiri lífsgleði og vaxa í gegnum tilfinningahafið sem þú berð innra með þér sem hefur ekki fengið frelsi svo árum skiptir.
Að opna hjartað krefst hugrekkis, að leyfa sér að vera varnarlaus. Með því að vera opin, heiðarleg og leyfa lífinu að flæða með þig þangað sem þér er ætlað að fara verður óreiða lífsins að fegurð og tækifæri til vaxtar birtast þér í gegnum reynslu.
Opið hjarta er eins og hlið að alheiminum sem fer fram á móttækileika og að leyfa. Þegar við sleppum egóinu, væntingum og þessarri brýnu þörf fyrir að stjórna og látum lífið flæða í gegnum okkur eins og því er ætlað að gera, filterslaust. Orð sem koma beint frá hjartanu eru hrá, raunveruleg og sönn og þegar við erum opinská með tilfinningar okkar og hugsanir lifum við frá raunverulegum stað, ekki heimatilbúinni gíslingu þar sem við þurfum stöðugt að hugsa og passa hvað við segjum af ótta við að segja eitthvað vitlaust eða missa stjórn á tilfinningum okkar sem vilja ekkert heitar en að fá að flæða, ekki sitja fastar innra með þér þar til sýður uppúr á óhentugum tímum.
Treystu því að þú ert nógu sterk til að takast á við hvað sem kemur þína leið. Opin hjörtu leiða okkur saman í fallegan vef þar sem sannleikur, auðmýkt og kærleikur ríkir.





Comments