top of page



Líkamleg yfirfærsla í Krists vitund
Andlega ferðalagið er langt og strangt ferli þar sem markmið þitt er uppljómun, þú fikrar þig áfram skref fyrir skref í átt að einingu með þekkingu og skilningi. Um er að ræða göfuga leið sem er vel þess verðug að fara en skrefin eru mörg og ekkert er í beinni línu. Lexíurnar hafa margar birtingamyndir og ferðalagið er knúið áfram af nýrri innsýn og stigvaxandi viðurkenningu á því sem er raunverulegt. Dagarnir eru eins misjafnir og þeir eru margir því það sem var satt í gær e


Ást er aflið sem skapar nýjan heim!
Ást er ekki bara mannleg tilfinning milli ástfanginna einstaklinga, ást er uppruni þinn og samtengjandi afl okkar allra. Ást er aflið sem skapar nýjan heim. Fegurð í brosi og ósögðum orðum, velvild og hjartahlýja til alls sem er, á dýpi sem fæst ekki lýst með orðum, aðeins fundið í dýpstu tengingu sálar við upprunann. Það sem augun sjá er takmarkað - það sem hjartað finnur, endalaust. Ást er aldrei sóað, jafnvel þó að aðrir geti ekki tekið þinni ást nema á því dýpi sem þeir e


Að lifa frá hjartanu í stað hugans
Fyrri hluta ævi minnar lifði ég frá huganum. Hugurinn er sá sem vill hafa allt á hreinu, stjórna öllu, spá fyrir um allt og vernda mig gegn sársauka og óvissu. Hugurinn er öflugt verkfæri en honum var aðeins ætlað að koma mér svo langt og síst af öllu var honum ætlað að vera stjórnandi lífs míns. Þegar ég lifði frá huganum var lífið þungt og innantómt þrátt fyrir tilraunir til annars. Ég gat hugsað um að vilja frið og betra líf á meðan það ríkti stríð innra með mér. Hugurinn


Burnout - séð frá andlegu sjónarhorni
“Burnout” er líkamlegt ástand sem gerir vart við sig þegar líkami og sál dansa ekki í takt og andlega hliðin þín hefur verið svelt svo um munar á kostnað taugakerfis þíns. Það er þín áminning á að því meira sem þú gerir “þarna úti”, því aftengdari ertu þínum raunverulega kjarna, sál þinni og innri veröld. Þetta ástand er ákall aftur heim! Heim í hjartað, heim í innri ró, heim til sjálfrar þín og þíns taugakerfis. Þú hefur rúllað áfram á hraða sem þú valdir ekki meðvitað, álag


Opið hjarta tengir okkur saman
"Opnaðu, slepptu, leyfðu", hvíslar hjarta þitt í örvæntingu. Tími til kominn að losa um brynjuna sem þú berð sem hefur haldið þér í ótta, efa og tilraunum til að hafa stjórn á lífinu. Brynjan er þín leið til að vernda sjálfa þig fyrir höggum lífsins en hún heldur þér líka frá tengingu við aðra og dýpstu fegurðinni sem lífið hefur uppá að bjóða. Fallega hjartað þitt bíður eftir því að finna, elska og vera elskað. Að fá tækifæri til að tengjast öðrum í samkennd, finna til meiri
bottom of page
