
Hjálparmiðlun/Orkumiðlun
Hjálparmiðlun/Orkumiðlun er miðlun gerð til að hjálpa og færa til orku - ekki hamla eða lama fólk í eigin ákvarðanatöku og gefa kraft sinn í hendur annarra. Miðlunin sem slík er samtal milli jafningja sem hjálpar þér að leita og finna eigin svör við spurningum og löngunum innra með þér og færa úr vegi þær hindranir sem þú hefur að þínum sannleika. Allir möguleikar eru nú þegar í þínum höndum en oft á tíðum flækjumst við fyrir okkur sjálfum og leitumst eftir auðveldu leiðinni til að leysa öll okkar vandamál. Ég er þeirrar vitneskju gædd að vita að það er ekki í mínum höndum að taka frá þér kraft og persónulegan vilja í þessu lífi með því að gefa þér öll svörin um framtíðina heldur lyfta þér upp úr leðjunni og þokunni sem gerir þér ekki kleift að sjá það sem er fyrir framan þig.
Svörin sem þú vilt fá og svörin sem þínir leiðbeinendur og Guð eru að reyna koma áleiðis til þín og telja þig þurfa framar öllu eru ekki endilega þau sömu.
Ég miðla að handan því sem Guð vill að þú vitir. Hver þú ert, hvaða kraftur býr innra með þér og hverju þú hefur gleymt. Ég er sendiboði kærleika og vinn í Guðs ljósi með æðstu mögulegu útkomu að leiðarljósi fyrir hvern einstakling sem ég spjalla við.